Salsa: Á Kúbu dansa allir salsa. Hún er dönsuð á götum úti jafnt sem á sýningum á fínni stöðum. Hún er samofin þjóðarsálinni og tónlistinni. Salsa túlkar einstakt samspil milli kynjanna. Hún er jafn framt dönsuð af pörum sem og einstaklingum. Salsa er mjög skemmtilegur dans, hress og framandi. Salsa byggir á þremur grunnskrefum sem útfærast svo á mismunandi vegu.
Tecnica moderna (danstækni): Í þessum tímum er ballett undirstaðan, en einnig eru þróaðar hreifingar út frá "contraction/release". Um er að ræða erfiðar tækniæfingar, en nauðsynlegar til að móta líkamann, gera hann sterari og liðugan. Þessi tækni vinnur einnig með meðvitund dansarans og fegurð hreyfinganna. Mikið er unnið með snúninga og stökk á fjölbreyttan hátt.
Folklor Afro-Cubano: Guðir og gyðjur Yoruba-trúarinnar túlkaðir á hefðbundinn hátt. Hér er um að ræða dansa með afrískum rótum sem bárust með þrælum til Kúbu. Þar birtast guðirnir og gyðjurnar hvert á fætur öðru; fyndin, kraftmikil, erótísk og dramatísk, hvert með sinn karakter. Hér reynir þónokkuð á tækni dansarans en einnig á leikhæfileika og túlkun.
Contemporáneo (nútímadans): Í þessum dansstíl er oft dansað i hópum, og leyfir mikið frelsi í hreyfingum. Mikið er unnið með að gefa og fá þyngd, og að lyfta og bera (body contact). Styrkir einbeitingu, öryggi og notkun á rými. Mikið er unnið á gólfi út frá æfingum sem heita "volando bajo" eða "fljúgandi niðri".
Mambo: Skemmtilegur dans þar sem mjaðma-, handa- axlahreyfingar skipa stóran sess. Hér er unnið með dans-minni og dans-samhæfingu. Mambo hefur margar útfærslur og afbrigði.